| Velkomin á síðuna mína |
| Við heitum Sylvan Dagur og Theodór Jesse..... |
|
|
Um okkur:
...og við eigum heima í Fairview í Norður-Karólínu. Það er í Bandaríkjunum. Mamma okkar heitir Hulda og pabbi okkarheitir Thomas Vance. Mamma er úr Grindavík en pabbi frá Florida.
Sylvan Dagur: Ég var tekinn með keisaraskurði þann 14. apríl 2005 eftir 41 viku í mallanum hennar mömmu. Ég var á vökudeild í 2 sólarhringa og fékk sýklalyf 2svar á dag í heila viku eftir að ég fæddist. Ég var 3376 grömm og 53 cm. Theodór Jesse: Ég var tekinn með keisara þann 15. október 2009, 5 vikum fyrir tímann. Mamma missti vatnið og þá var ekkert annað í stöðunni en að hleypa mér út. Ég var svo í 11 daga á vökudeild þar sem ég lærði að anda almennilega, halda á mér hita, sjúga snuð og drekka mjólk. Ég var 2260 grömm og 48 cm.
|
|
|
|
Annað:
Frændsystkin mín á Barnalandi:
Flóvent Rigved
Viktor Ingi
Sunna Mjöll Vinir mínir:
Gústav Þór Fleiri: Grindavíkurbörn
Óliver Andri
HRÚTURINN
21. mars - 19. apríl Rambó leikfélaganna er mættur á svæðið. Með barn í hrútsmerkinu mega foreldrar búast við miklu fjöri á heimilinu því það ríkir engin lognmolla í kringum hrútinn. Ekki ætlast til þess að barnið sitji kyrrt með hringlu. Þetta er barnið sem veifar þér ofan af hæsta tré, alls óhrætt við að taka áhættu. Hrútsbarnið er allt annað en hljóðlátt og lætur oft vel í sér heyra. Sem eldsmerki er hrúturinn orkumikill og hefur ávallt eitthvað fyrir stafni. Verður erfitt að ráða við litla hrúta? Það er líklegra en ekki. Foreldrar ættu eins fljótt og hægt er að kenna þessu barni að vinna með öðrum börnum. Að deila einhverju með öðrum er eitthvað sem kemur ekki af sjálfu sér ? það þarf að kenna litlum hrútum. Þeir eru einnig ákaflega tapsárir. Þeir þrá athygli og eiga mjög auðvelt með að verða sér úti um hana með ýmsum aðferðum. Hrútar eru fæddir leiðtogar og ef þú ætlar að hafa eitthvað að segja er betra að láta þá vita með afgerandi hætti hver er við stjórnvölinn því annars er eins líklegt að stjórnin verði tekin úr þínum höndum. Lítill hrútur er oft eins og ótemja, lítið gefinn fyrir að hlýða reglum og vera þægur nema þegar honum hentar. Vegna þess hve hann er orkumikill er nauðsynlegt að hann fái mikla hreyfingu. Hann verður að fá að hlaupa um og róta til heima hjá sér. Ef hann fær ekki útrás fyrir orkuna verður hann pirraður og ergilegur. Honum líður best í lifandi og fjörugu umhverfi. Þar sem fljótfærni og óþolinmæði eru meðal veikleika hans þarf að kenna honum að hægja á sér og telja upp að tíu áður en hann rýkur af stað. Einnig þarf að venja hann á að ljúka því sem hann byrjar á.
|
| Þú ert gestur nr. 44756 |